HD tekur þátt í sjávarútvegssýningunni IceFish 2026 sem fram fer í Fífunni í Kópavogi dagana 22.–24. september. Á sýningunni kynnir HD heildstæða iðn- og tækniþjónustu fyrir sjávarútveg og fiskeldi, þar á meðal ástandsvöktun og -greiningar, skipaviðgerðir, stálsmíði, vélsmíði og búnaðarlausnir.
Nýlega lauk HD við hönnun og smíði tveggja stálvegvísa fyrir Safn Gísla á Uppsölum í Selárdal í Arnarfirði. Vegvísarnir eru gjöf frá HD til safnsins og hefur þeim fyrri þegar verið komið fyrir þar sem hann mun taka á móti gestum og vísa þeim leið að safninu. Safnið verður formlega opnað 7. ágúst 2026.
HD iðn- og tækniþjónusta hefur lokið uppbyggingu nýrrar tilraunaverksmiðju kanadíska tæknifyrirtækisins Syntholene Energy á Húsavík, þar sem þróuð er ný kynslóð tækni til framleiðslu vetnis og kolefnishlutlauss flugeldsneytis með nýtingu jarðhita.
HD Industrial & Technical Services, an Iceland-based engineering and service company with more than 3 decades of experience supporting critical energy infrastructure, is presenting its geothermal and power generation capabilities at the World Geothermal Congress (WGC).
HD hefur hlotið Þekkingarviðurkenningu Félags viðskipta- og hagfræðinga 2026 fyrir framúrskarandi vegferð í uppbyggingu þekkingardrifinnar iðn- og tækniþjónustu.
Þegar rekstraröryggi skiptir öllu geta bilanir í lykilbúnaði haft verulegar afleiðingar. Bilun í heitavatnsdælu er ekki aðeins tæknilegt vandamál heldur getur hún valdið því að það frjósi í lögnum, með tilheyrandi heitavatnsleysi og verulegu samfélagslegu og fjárhagslegu tjóni.
D býður upp á faglega þjónustu við nýsmíði, viðgerðir og viðhald á vökva- og lofttjökkum. Með áralangri reynslu og sterkri þekkingu á efnisvali leggur fyrirtækið áherslu á lausnir sem styðja við öruggan og hagkvæman rekstur.
Nýverið birtist grein um lausnir HD í fiskeldi í tímaritinu Cool Atlantic, þar sem fjallað er um mikilvægi dælulausna og ástandsdrifins viðhalds í nútíma rekstri eldisstöðva.
Góðir gestir heimsóttu HD ehf. í Mosfellsbæ þar sem kastljósið var á framþróun í sérhæfðri starfsemi fyrirtækisins á sviði rótor- og leiðiskófluviðgerða.
Fulltrúar HD hafa undanfarin ár lagt leið sína á Seafood Processing Global, en í ár var ákveðið að stíga skrefið til fulls og vera með eigin aðstöðu á sameiginlegum bás Íslandsstofu, 3BB201-G, þar sem við bjóðum viðskiptavini velkomna að setjast niður yfir hressingu og spjalli.

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.